Harpa bílahús

Bílastæðahús með 545 stæðum er við Hörpu
Stæðin eru björt, upphituð og aðgengileg beint inn í húsið

Reglur 115 Security

Fyrir framan Hörpu er einungis hægt að hleypa gestum út úr farartækjum. Ekki er leyfilegt að leggja þar. Gjaldskylda er í húsinu allan sólarhringinn. Metan- og rafbílar eru ekki undanþegnir gjaldskyldu.

Myndavélar lesa bílnúmer við komu og þarf að greiða við brottför í gjaldmælum sem eru 1 á hvorri hæð bílahússins. Einnig er hægt að greiða með EasyPark eða Parka, gjaldsvæði Harpa business center. Hæðartakmörk bifreiða í kjallaranum er  2,2 m. 

Bent skal á að bannað er að leggja bifreiðum á torginu fyrir framan eða til hliðar við Hörpu. ATH: Lögð eru stöðubrot á bíla sem leggja þar.
Ef lagt er við vörumóttöku, sem ætluð er aðkomu neyðarbíla, eru bílar dregnir í burtu.
Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru gjaldskyld eins og önnur stæði og eru staðsett næst inngöngum. 

Vangreiðslugjald

Vangreiðslugjald 6.000 kr er lagt á bifreið í gjaldskyldu bílastæði þegar sýnt þykir að ekki hafi verið greitt fyrir stöðu bifreiðar í stæðinu eða greitt hefur verið fyrir of stuttan tíma. Vangreiðslugjald lækkar í 5.000 kr ef greitt innan þriggja virkra daga.

Næsta virka dag eftir álagningu er krafan stofnuð og send í netbanka umráðamanns/eiganda ökutækisins til innheimtu.
Eftir að krafan hefur verið stofnuð er einnig hægt að greiða gjaldið í bönkum og sparisjóðum.

Andmælaréttur

Teljir þú álagningu vangreiðslugjaldsins ekki samræmast reglum 115 Security um notkun bílakjallarans í Hörpu er unnt að leggja fram beiðni um endurskoðun hennar með því að senda tölvupóst á netfangið 115@115.is.





Leita




karfa
Samtals 0 kr.

hlutir í körfu

0